The course is for journalists and editorial staff in the Nordics and Greenland, Faroe Islands and Åland. In May, we will select among the applicants to ensure participation across all of the Nordic countries. The deadline for your application is 22 November, 2021.
Stay updated about how to apply, who you’ll meet, visit etc., sign up for updates right here.
You will only be updated on this course. We take your privacy seriously and won’t share your email address with anyone.
Nú stendur yfir undirbúningur á áhugaverðu námskeiði í nýsköpun í starfrænni fjölmiðlun. Námskeiðið nýtist þeim sem eru með hugmynd sem felur í sér nýjung í notkun stafrænna miðla í snjalltækjum, sem notendur eru tilbúnir að greiða fyrir.
Ef fjölmiðlar og fjölmiðlasamsteypur á Norðurlöndum ætla sér að hafa í við stafræna þróun og mæta þörfum notenda er nýsköpun og fjárhagslegri sjálfbærni í rekstri fjölmiðla nauðsynleg.
Norræna endurmenntunarstofnun blaðamanna, NJC, hefur ákveðið að bjóða upp á nýtt námskeið sem leggur áherslu á að undirbúa þátttakendur fyrir að þróa hugmyndir, koma þeim í framkvæmd og skapa þeim fjárhagslegan grundvöll. Ætlunin er að þátttakendur læri af þeim fremstu í faginu. Þeir fá tækifæri til þess að vinna í Árósum, New York og Fjölmiðlaþorpinu í Bergen þar sem frumkvöðar í fjölmiðlun miðla af reynslu sinni og undirbúa þátttakendur fyrir þróunarverkefnin.
Dagsetning, 2022:
– Árósar: 4. – 7. apríl
– New York: 2. – 6. maí
– Bergen: 7. – 10. júní
Vítamínsprauta á erfiðum tímum
„ Þetta námskeið á að vera nokkurs konar vítamínsprauta fyrir stafræna þróun í norrænum fjölmiðlum“ segir John Frölich, verkefnastjóri hjá NJC í Árósum.
„Covid getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir norræna fjölmiðla, bæði stóra og smáa. Námskeiðinu er ætlað að styðja við fjölmiðlana en það er opið öllum þeim sem vilja innleiða nýsköpun í stafrænni fjölmiðlun og afla sér tekna með nýjum hætti„ segir John.
“Fjölmiðlun og tæknivæðing eru óaðskiljanleg í nútíma fjölmiðlun“, segir Anne Jacobsen, forstjóri Fjölmiðlaþorpsins í Bergen.
„Við erum leiðandi í tæknilegri fjölmiðlun og stafrænni þróun og horfum til framtíðar. Við leggjum líka áherslu á að þróa nýjar leiðir í rekstrarumhverfi fjölmiðla. Við höfum þörf fyrir nýsköpun og nýjan þankagang. Við munum leggja okkur fram við að miðla þekkingu okkar og hlökkum til þess að taka á móti þátttakendum í Fjölmiðlaþorpinu í Bergen“, segir Anne.
Námskeiðið samanstendur af kennslu, vinnustofum og fyrirlestrum frá sérfræðingum í faginu og frá þátttakendunum sjálfum þar sem þeir miðla eigin hugmyndum og framvindu viðskiptaáætlana þeim tengdum.
Notandinn er í forgrunni í rekstri fjölmiðla
Hluti af námskeiðinu fjallar um greiningu á notendahópum. Notandinn er í forgrunni og tilgangurinn er sá að opna augu þátttakenda fyrir mikilvægi fjárhagslegrar afkomu og stefnumörkunar í rekstri fjölmiðla.
Þátttakendum gefst einnig tækifæri til þess að framkvæma notendaprófanir á hugmyndum sínum til þess sjá hvernig neytendur bregðast við. Jafnframt er lögð áhersla á að þjálfa þátttakendur í notkun á tölfræði og að nota niðurstöður kannana með gagnvirkum hætti.
Námskeiðið er einstakt að því leyti að þátttakendur öðlast bæði hagnýta þekkingu og skilning á því hvernig nýta má markaðsdrifna fjölmiðlun til framfara.
Norrænn ávinningur
Þátttakendur verða valdir úr umsóknum frá öllum norrænu þjóðunum. Áhersla verður lögð á að þátttakendur endurspegli fjölbreytileika norrænna fjölmiðla, bæði það sem er líkt og ólíkt með þeim. Í kaupauka öðlast þátttakendur víðtækt tengslanet sem þeir geta nýtt sér í framtíðinni.
Frekari upplýsingar má finna á slóðinni: njc.dk/kurser/nordicmediainnovation. Einnig má hafa beint samband við John Frölich hjá NJC, jf2@dmjx.dk /simi:0045 20950945
NJC býður upp á námskeiðið í samstarfi DMJ, Danska blaðamannaháskólann, og Willmore sem er ráðgjafafyrirtæki á sviði stafrænnar fjölmiðlunar, þróunar og rekstrar.
Facebook Journalism Project, FJP, er aðalstyrktaraðili námskeiðsins ásamt Fjölmiðlaþorpinu í Bergen, MCB. NJC ber ábyrgð á innihaldi námskeiðsins, skipuleggur, velur leiðbeinendur og þátttakendur.
Samstarfið við FJP og MCB er tilkomið vegna þess að þessir aðilar leggja áherslu á að leiðbeina blaðamönnum við að styrkja samband þeirra við notendur og takast á við sumar af þeim áskorunum sem fréttamiðlar standa frammi fyrir í stafrænum heimi.
FJP vinnur með fjölmiðlum og fyrirtækjum um allan heim. Samstarfið á sér stað í gegnum þróun, þjálfun og samstarf við fjölmiðlasamsteypur og fyrirtæki í baráttunni gegn falsfréttum. Á Norðurlöndunum starfar FJP með TjekDet í Danmörku, Faktisk.no í Noregi og Källkritikbyrån í Svíþjóð.
MCB er leiðandi alþjóðleg miðstöð fyrir fjölmiðlun og tækniþróun ásamt fyrirtækinu Media Lab og Start Up laboratorium. Innan þessa hóps eru yfir 100 fyrirtæki og átta háskólar og rannsóknastofnanir. Háskólinn í Bergen stofnaði Media Cluster, en upplýsingatækni- og fjölmiðladeildin tilheyrir MCB ásamt leiðandi fjölmiðlum og fjölmiðlatæknifyrirtækjum.